29. fundur
á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 16. nóvember 2021 kl. 10:05


Mætt:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 10:05
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 10:05
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 10:05
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 10:05
Inga Sæland (IngS), kl. 10:05
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 10:05
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:05
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 10:05
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:05
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 10:05

Diljá Mist Einarsdóttir og Inga Sæland tóku þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. 1. mgr. 17. gr. þingskapa, sbr. einnig 1. mgr. 48. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Þórhallur Vilhjálmsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:05
Fundargerðir 27. og 28. fundar voru samþykktar.

2) Undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa Kl. 10:05
Nefndin ræddi drög að greinargerð nefndarinnar.

Hlé var gert á fundi kl. 12:20-13:10.

Nefndin hélt áfram að ræða drög að greinargerð nefndarinnar.

Nefndin ræddi verkefni og málsmeðferð nefndarinnar.

Nefndin ræddi fyrirkomulag næsta fundar.

3) Störf nefndarinnar Kl. 15:05
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:05