33. fundur
á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 22. nóvember 2021 kl. 10:10


Mætt:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 10:10
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 10:10
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 10:20
Inga Sæland (IngS), kl. 10:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 10:10
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:10
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 10:10
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:10
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 10:10

Diljá Mist Einarsdóttir og Inga Sæland tóku þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. 1. mgr. 17. gr. þingskapa, sbr. einnig 1. mgr. 48. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Þórhallur Vilhjálmsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:10
Dagskrárlið frestað.

2) Undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa Kl. 10:10
Nefndin ræddi greinargerð um yfirferð yfir flokkun kjörgagna í Norðvesturkjördæmi sem fór fram á lögreglustöðinni í Borgarnesi 11. nóvember 2021.

Nefndin ræddi drög að greinargerð nefndarinnar.

Nefndin ræddi fyrirkomulag næsta fundar.

3) Störf nefndarinnar Kl. 12:35
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:35