34. fundur
á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 22. nóvember 2021 kl. 17:10


Mætt:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 17:10
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 17:10
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 17:10
Inga Sæland (IngS), kl. 17:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 17:10
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 17:10
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 17:10
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 17:10
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 17:10

Inga Sæland tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. 1. mgr. 17. gr. þingskapa, sbr. einnig 1. mgr. 48. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.

Diljá Mist Einarsdóttir vék af fundi kl. 19:30. Björn Leví Gunnarsson vék af fundi kl. 19:40.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Þórhallur Vilhjálmsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 20:14
Fundargerðir 32. og 33. fundar voru samþykktar.

2) Undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa Kl. 17:10
Nefndin ræddi drög að greinargerð nefndarinnar.

Nefndin samþykkti að greinargerð nefndarinnar verði afhent kjörbréfanefnd að lokinni kosningu hennar á þingsetningarfundi þriðjudaginn 23. nóvember 2021.

3) Störf nefndarinnar Kl. 20:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 20:15