69. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 150. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 14. maí 2020 kl. 09:10


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 09:10
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 09:10
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 09:10
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:10
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:10
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:10
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:10
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:10

Nefndarritari: Klara Óðinsdóttir

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Dagskrárlið frestað.

2) 329. mál - Menntasjóður námsmanna Kl. 09:15
Nefndin ræddi við Agnesi Guðjónsdóttur frá mennta- og menningarmálaráðuneyti. Hún gerði grein fyrir efni tillagna ríkisstjórnarinnar um aðgerðir vegna endurgreiðslu námslána og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 159. mál - meðferð einkamála Kl. 09:40
Nefndin ræddi við Þorvald Heiðar Þorsteinsson frá dómsmálaráðuneyti. Hann gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) 470. mál - dómstólar o.fl. Kl. 09:50
Nefndin ræddi við Þorvald Heiðar Þorsteinsson frá dómsmálaráðuneyti. Hann gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

5) 643. mál - forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021--2025 Kl. 10:00
Nefndin ræddi við Rósu Erlingsdóttur og Herdísi Sólborgu Haraldsdóttur frá dómsmálaráðuneyti og Jónu Pálsdóttur frá mennta- og menningarmálaráðuneytingu. Þær gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

6) 762. mál - nauðungarsala Kl. 10:35
Ákveðið að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.

7) 717. mál - útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga Kl. 10:35
Ákveðið að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.

8) 763. mál - stuðningur við íþróttaiðkun barna vegna Covid-19 Kl. 10:35
Ákveðið að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.

9) Önnur mál Kl. 10:40
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:40