72. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 150. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn föstudaginn 22. maí 2020 kl. 09:25


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 09:25
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 09:25
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 09:25
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:25
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:35
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:30
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:25
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:25

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir boðaði forföll.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Pétur Hrafn Hafstein

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:25
Fundargerð 71. fundar var samþykkt.

2) 814. mál - tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar Kl. 09:25
Nefndin ræddi við Heiðrúnu Björk Gísladóttur og Ingibjörgu Björnsdóttur frá Samtökum atvinnulífsins. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Kl. 09:40
Nefndin ræddi við Björgu Ástu Þórðardóttur og Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur frá Samtökum iðnaðarins. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Hlé var gert á fundi kl. 10:12-10:20.

Þá ræddi nefndin við Yngva Örn Kristinsson frá Samtökum fjármálafyrirtækja sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Jafnframt ræddi nefndin við Drífu Snædal og Halldór Grönvold frá Alþýðusambandi Íslands. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Einnig ræddi nefndin við Kjartan Bjarna Björgvinsson frá Dómarafélagi Íslands sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Þar að auki ræddi nefndin við Jón Gunnar Ásbjörnsson frá Lögmannafélagi Íslands sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Að lokum ræddi nefndin við Jóhannes Þór Skúlason og Baldur Sigmundsson frá Samtökum ferðaþjónustunnar. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Nefndin ræddi málið.

3) Önnur mál Kl. 09:35
Helgi Hrafn Gunnarsson óskaði eftir að nefndin fjallaði um verklagsferla Neyðarlínunnar.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:30