75. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 150. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 28. maí 2020 kl. 09:00


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 09:00
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 09:10
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:00
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:00

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Pétur Hrafn Hafstein

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) 814. mál - tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar Kl. 09:00
Nefndin ræddi við Bryndísi Helgadóttur og Þorvald Heiðar Þorsteinsson frá dómsmálaráðuneyti. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Nefndin ræddi málið.

3) 815. mál - gjaldþrotaskipti Kl. 09:40
Nefndin ræddi við Bryndísi Helgadóttur og Þorvald Heiðar Þorsteinsson frá dómsmálaráðuneyti. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Veiting ríkisborgararéttar Kl. 10:13
Samþykkt að Páll Magnússon, Helgi Hrafn Gunnarsson og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skipi undirnefnd sem fjalli um umsóknir um ríkisborgararétt.

5) Önnur mál Kl. 10:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:15