76. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 2. júní 2020 kl. 09:00


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 09:00
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 09:38
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:00
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:00

Páll Magnússon vék af fundi kl. 10:15 og tók þá Guðmundur Andri Thorsson við fundarstjórn.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Pétur Hrafn Hafstein

Anna Kolbrún Árnadóttir tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl. og framlengd tvívegis á þingfundum 14. apríl og 30. apríl sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerðir 74. og 75. fundar voru samþykktar.

2) 329. mál - Menntasjóður námsmanna Kl. 09:00
Nefndin ræddi við Ingvar J. Rögnvaldsson, Eddu Símonardóttur og Helgu Valborgu Steinarsdóttur frá Skattinum og Bjarna Frey Rúnarsson frá Persónuvernd í gegnum fjarfundabúnað. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Nefndin ræddi málið.

3) 815. mál - gjaldþrotaskipti Kl. 10:00
Nefndin ræddi við Geir Gestsson frá Lögmannafélagi Íslands í gegnum fjarfundabúnað. Hann gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Kl. 10:28
Nefndin ræddi einnig við Ásu Ólafsdóttur í gegnum fjarfundabúnað sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) 814. mál - tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar atvinnufyrirtækja Kl. 10:27
Dagskrárlið frestað.

5) Verklagsreglur Neyðarlínunnar Kl. 09:45
Nefndin ræddi málið. Nefndin ákvað að óska eftir við Neyðarlínuna að fá kynningu á starfsemi hennar og helstu verkefnum.

6) Önnur mál Kl. 10:57
Nefndin ræddi stöðu mála í nefndinni.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00