79. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 9. júní 2020 kl. 09:05


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 09:05
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 09:15
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 09:05
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:05
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:15
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:05
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:05

Helgi Hrafn Gunnarsson boðaði forföll.

Nefndarritari: Elisabeth Patriarca Kruger

Anna Kolbrún Árnadóttir tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl. og framlengd tvívegis á þingfundum 14. apríl og 30. apríl sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:05
Fundargerð 78. fundar var samþykkt.

2) 814. mál - tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar atvinnufyrirtækja Kl. 09:05
Nefndin ræddi við Eirík Elís Þorláksson í gegnum fjarfundabúnað. Hann gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Þá ræddi nefndin við Bryndísi Helgadóttur frá dómsmálaráðuneyti og Ásu Ólafsdóttur í gegnum fjarfundabúnað. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Nefndin ræddi málið.

3) Önnur mál Kl. 11:05
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:05