83. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 16. júní 2020 kl. 09:05


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 09:05
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 09:05
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 09:15
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:05
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:05
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:05
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:15
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:05
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:05

Steinunn Þóra Árnadóttir vék af fundi vegna annarra þingstarfa kl. 09:50-11:00. Helgi Hrafn Gunnarsson vék af fundi kl. 11:20. Birgir Ármannsson vék af fundi kl. 11:45.

Nefndarritari: Elisabeth Patriarca Kruger

Anna Kolbrún Árnadóttir tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl., framlengd á þingfundum 14. apríl og 30. apríl sl. og endurnýjuð á þingfundi 8. júní sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:05
Fundargerð 82. fundar var samþykkt.

2) 815. mál - gjaldþrotaskipti Kl. 09:05
Nefndin ræddi við Símon Sigvaldason frá Héraðsdómi Reykjavíkur í gegnum fjarfundabúnað. Hann gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 707. mál - barnalög Kl. 09:35
Nefndin ræddi við Margréti Steinarsdóttur frá Mannréttindaskrifstofu Íslands í gegnum fjarfundabúnað. Hún gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Nefndin ræddi einnig við Jón Fannar Kolbeinsson frá Jafnréttisstofu í gegnum fjarfundabúnað. Hann gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) 715. mál - breyting á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna Kl. 10:00
Nefndin ræddi við Ásdísi Ármannsdóttur frá Sýslumannafélagi Íslands í gegnum fjarfundabúnað. Hún gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Nefndin ræddi einnig við Óskar Magnússon frá Landssamtökum landeigenda á Íslandi í gegnum fjarfundabúnað. Hann gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Kl. 11:00
Þá ræddi nefndin við Friðrik Árna Friðriksson Hirst, Eyvind G. Gunnarsson, Sif Guðjónsdóttur frá forsætisráðuneyti og Arnór Snæbjörnsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti í gegnum fjarfundabúnað. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) Önnur mál Kl. 10:35
Hlé var gert á fundi kl. 10:37-11:00.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:00