89. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 24. júní 2020 kl. 10:00


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 10:00
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 10:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 10:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 10:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 10:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 10:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 10:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 10:00
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 10:00

Nefndarritari: Elisabeth Patriarca Kruger

Anna Kolbrún Árnadóttir tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl., framlengd á þingfundum 14. apríl og 30. apríl sl. og endurnýjuð á þingfundi 8. júní sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:00
Fundargerð 88. fundar var samþykkt.

2) 708. mál - staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar o.fl. Kl. 10:00
Nefndin ræddi við Rósu Dögg Flosadóttur og Fanneyju Óskarsdóttur frá dómsmálaráðuneyti í gegnum fjarfundabúnað. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Nefndin fjallaði um málið.

3) Veiting ríkisborgararéttar Kl. 10:35
Nefndin samþykkti að flytja frumvarp til laga um veitingu ríkisborgararéttar.

4) 278. mál - bætur vegna ærumeiðinga Kl. 10:45
Nefndin fjallaði um málið.

5) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00