8. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 5. nóvember 2020 kl. 09:00


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 09:00
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 09:05
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 09:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:05
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:00
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:00
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 09:00

Silja Dögg Gunnarsdóttir vék af fundi kl. 09:35.

Nefndarritari: Elisabeth Patriarca Kruger

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 7. fundar var samþykkt.

2) 160. mál - breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 09:00
Nefndin ræddi málið.

Kl. 09:15
Nefndin fékk á sinn fund Guðmund Inga Þóroddsson frá Afstöðu, félagi fanga, sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt.

Að nefndaráliti standa Páll Magnússon, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Birgir Ármannsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þorsteinn Sæmundsson.

3) 136. mál - höfundalög Kl. 09:30
Nefndin fékk á sinn fund Rán Tryggvadóttur og Karitas H. Gunnarsdóttur frá mennta- og menningarmálaráðuneyti. Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Veiting ríkisborgararéttar Kl. 09:05
Samþykkt að Páll Magnússon, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skipi undirnefnd sem fjalli um umsóknir um ríkisborgararétt.

5) Önnur mál Kl. 09:23
Kl. 09:23 og kl. 09:53
Nefndin ræddi störf nefndarinnar og fyrirkomulag næstu funda.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:57