10. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 10. nóvember 2020 kl. 09:00


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 09:00
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 09:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:40
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:00
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 10:55
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:05
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 09:00

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir boðaði seinkun vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Þuríður Benediktsdóttir

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 9. fundar var samþykkt.

2) 14. mál - jöfn staða og jafn réttur kynjanna Kl. 09:05
Nefndin fékk á sinn fund Steinunni Valdísi Óskarsdóttur og Rán Ingvarsdóttur frá forsætisráðuneyti. Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Samhliða var fjallað um 3. dagskrárlið.

3) 15. mál - stjórnsýsla jafnréttismála Kl. 09:05
Nefndin fékk á sinn fund Steinunni Valdísi Óskarsdóttur og Rán Ingvarsdóttur frá forsætisráðuneyti. Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Samhliða var fjallað um 2. dagskrárlið.

4) 20. mál - kynrænt sjálfræði Kl. 09:45
Nefndin fékk á sinn fund Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, Rán Ingvarsdóttur og Aagot Óskarsdóttur frá forsætisráðuneyti. Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) 21. mál - breyting á ýmsum lögum vegna laga um kynrænt sjálfræði Kl. 09:53
Nefndin fékk á sinn fund Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, Rán Ingvarsdóttur og Aagot Óskarsdóttur frá forsætisráðuneyti. Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

6) 22. mál - kynrænt sjálfræði Kl. 10:05
Nefndin fékk á sinn fund Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, Rán Ingvarsdóttur og Kára Hólm Ragnarsson frá forsætisráðuneyti. Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

7) 211. mál - bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum Kl. 10:25
Nefndin fékk á sinn fund Unu Björk Ómarsdóttur frá forsætisráðuneyti og Guðmund Bjarna Ragnarsson frá dómsmálaráðuneyti. Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

8) 207. mál - skráning einstaklinga Kl. 10:45
Nefndin fékk á sinn fund Skúla Þór Gunnsteinsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti sem kynnti málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

9) Önnur mál Kl. 09:00
Kl. 09:00 og kl. 11:10

Nefndin ræddi störf nefndarinnar og fyrirkomulag næstu funda.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:15