32. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, föstudaginn 29. apríl 2022 kl. 13:05


Mætt:

Bryndís Haraldsdóttir (BHar) formaður, kl. 13:05
Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 1. varaformaður, kl. 13:05
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF) 2. varaformaður, kl. 13:05
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 13:05
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm) fyrir Birgi Þórarinsson (BirgÞ), kl. 13:05
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 13:05
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 13:05
Logi Einarsson (LE), kl. 13:05
Sigmar Guðmundsson (SGuðm), kl. 13:05

Bergþór Ólason var fjarverandi.

Nefndarritari: Inga Valgerður Stefánsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:05
Fundargerðir 30. og 31. fundar voru samþykktar.

2) 415. mál - aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022--2025 Kl. 13:05
Málið var sett á dagskrá að nýju að beiðni framsögumanns sem lagði fram uppfært nefndarálit með breytingartillögum. Tillaga framsögumanns um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.
Að nefndaráliti meiri hluta með breytingartillögum standa Bryndís Haraldsdóttir, Jódís Skúladóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Eyjólfur Ármansson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Logi Einarsson.
Sigmar Guðmundsson áheyrnarfulltrúi er samþykkur álitinu.

3) Önnur mál Kl. 13:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:15