18. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 28. nóvember 2013 kl. 09:00


Mættir:

Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 09:00
Páll Valur Björnsson (PVB) 1. varaformaður, kl. 09:00
Guðbjartur Hannesson (GuðbH), kl. 09:00
Haraldur Einarsson (HE) fyrir LínS, kl. 09:00
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 09:00
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

ELA og HHG voru fjarverandi.

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Frv. til l. um breyt. á ýmsum lögum vegna færslu eftirlits með rafföngum sem ekki eru varanlega tengd mannvirkjum til Mannvirkjastofnunar. Kl. 09:00
Á fund nefndarinnar komu Björn Karlsson og Birgir Ágústsson frá Mannvirkjastofnun. Fóru þeir yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) 161. mál - flutningur verkefna frá innanríkisráðuneytinu til sýslumannsembætta Kl. 09:37
Á fund nefndarinnar kom Reimar Pétursson frá Lögmannafélagi Íslands. Fór hann yfir frumvarpið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 10:07
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:07