34. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 14. janúar 2014 kl. 10:05


Mættir:

Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 10:05
Páll Valur Björnsson (PVB) 1. varaformaður, kl. 10:05
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 10:33
Guðbjartur Hannesson (GuðbH), kl. 10:05
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 10:05
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 10:05
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 10:05
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:30
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) fyrir ELA, kl. 10:05

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 10:05
Dagskrárlið frestað.

2) 176. mál - jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla Kl. 10:10
Á fund nefndarinnar komu Rósa Guðrún Erlingsdóttir og Rán Ingvarsdóttir frá Velferðarráðuneytinu. Fóru þær yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 233. mál - fjárhagsaðstoð vegna gjaldþrotaskipta Kl. 11:08
Á fund nefndarinnar komu Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir og Lísa Margrét Sigurðardóttir frá Velferðarráðuneytinu. Fóru þær yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um notkun íslensku í stafrænni íslensku. Kl. 11:35
Nefndin samþykkti að flytja tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um notkun íslensku í stafrænni upplýsingatækni.

5) Önnur mál Kl. 11:45
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:00