40. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 28. janúar 2014 kl. 09:02


Mættir:

Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 09:02
Páll Valur Björnsson (PVB) 1. varaformaður, kl. 09:02
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 09:02
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:02
Guðbjartur Hannesson (GuðbH), kl. 09:02
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 10:28
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 09:14
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:02
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:02

Svandís Svavarsdóttir vék af fundi kl. 11:02 vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 09:02
Formaður kynnti fundargerðir 37, 38 og 39 og voru þær samþykktar.

2) Staða mála. Kl. 09:05
Nefndin fór yfir verkefnastöðu sína.

3) 250. mál - framkvæmdarvald og stjórnsýsla ríkisins í héraði Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar komu Ragnhildur Hjaltadóttir, Hermann Sæmundsson og Þórunn J. Hafstein frá Innanríkisráðuneytinu. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 251. mál - lögreglulög Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar komu Ragnhildur Hjaltadóttir, Hermann Sæmundsson og Þórunn J. Hafstein frá Innanríkisráðuneytinu. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) 249. mál - útlendingar Kl. 10:20
Á fund nefndarinnar komu Ragnhildur Hjaltadóttir, Hermann Sæmundsson, Bryndís Helgadóttir og Rósa Dögg Flosadóttir frá Innanríkisráðuneytinu. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

6) Önnur mál Kl. 11:27
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:27