50. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 21. apríl 2015 kl. 09:05


Mættir:

Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 09:06
Áslaug María Friðriksdóttir (ÁMF) fyrir Unni Brá Konráðsdóttur (UBK), kl. 09:05
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:15
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:06
Geir Jón Þórisson (GJÞ) fyrir Vilhjálm Árnason (VilÁ), kl. 09:06
Guðbjartur Hannesson (GuðbH), kl. 09:06
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:06
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 09:06

Páll Valur Björnsson var fjarverandi vegna persónulegra aðstæðna.

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:06
Fundagerðir 48 og 49 voru samþykktar.

2) 456. mál - Menntamálastofnun Kl. 09:10
Á fund nefndarinnar komu Björg Pétursdóttir, Elísabet Pétursdóttir, Jón Vilberg Guðjónsson, Leifur Eysteinsson og Sigríður Lára Ásbergsdóttir frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Sara Lind Guðbergsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Upplýsingafundur. Kl. 11:15
Á fund nefndarinnar kom Akeem Cujo frá Ísland Panorama Office. Fór hann yfir starf samtakanna og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 11:35
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:35