35. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 4. febrúar 2016 kl. 08:30


Mættir:

Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 08:30
Guðmundur Steingrímsson (GStein) 1. varaformaður, kl. 08:37
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 08:56
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 08:42
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 08:30
Karl Garðarsson (KG), kl. 08:30
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 08:30

Vilhjálmur Árnason og Jóhanna María Sigmundsdóttir voru fjarverandi.

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 08:30
Fundargerð nr. 34., var samþykkt án athugasemda.

2) Tilskipun 2014/26/ESB um höfundarétt og leyfisveitingu fyrir netafnot tónlistar Kl. 08:35
Nefndin afgreiddi álit sitt til utanríkismálanefndar. Allir viðstaddir nefndarmenn voru samþykkir álitinu.

3) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 96/2002, með síðari breytingum (úrskurðarnefnd og fjölgun nefndarmanna) Kl. 08:43
Nefndin ræddi frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 96/2002, með síðari breytingum.

4) 332. mál - fullnusta refsinga Kl. 08:55
Á fund nefndarinnar komu Skúli Þór Gunnsteinsson og Þórunn J. Hafstein frá innanríkisráðuneytinu og Þórður Sveinsson frá Persónuvernd. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) Önnur mál Kl. 09:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:50