80. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 25. ágúst 2016 kl. 13:00


Mættir:

Guðmundur Steingrímsson (GStein) 1. varaformaður, kl. 13:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 13:00
Ásta Guðrún Helgadóttir (ÁstaH) fyrir Helga Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 13:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 13:00
Haraldur Einarsson (HE), kl. 13:45
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 13:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 13:45

Ólína Þorvarðardóttir var fjarverandi vegna annara þingstarfa.
Geir Jón Þórisson var fjarverandi.

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) 794. mál - námslán og námsstyrkir Kl. 13:00
Á fund nefndarinnar komu Kristófer Már Maronsson, Guðmundur Snæbjörnsson og Inga María Árnadóttir frá Stúdentaráði Íslands. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) 660. mál - meðferð sakamála og meðferð einkamála Kl. 13:50
Nefndin afgreiddi álit sitt. Allir viðstaddir nefndarmenn samþykkir álitinu.

3) 764. mál - framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum 2016--2019 Kl. 14:00
Nefndin afgreiddi álit sitt. Allir viðstaddir nefndarmenn samþykkir álitinu.

4) Önnur mál Kl. 14:10
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:10