54. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, sunnudaginn 10. júní 2018 kl. 15:04


Mættir:

Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 15:04
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 2. varaformaður, kl. 15:04
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 15:04
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 15:04
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 15:04
Óli Björn Kárason (ÓBK) fyrir Pál Magnússon (PállM), kl. 15:04
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 15:04
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) fyrir Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 15:04
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 15:04

Óli Björn Kárason vék af fundi kl. 17:16. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir vék af fundi kl. 19:00 þegar Sara Elísa Þórðardóttir mætti og sat fundinn fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur.

Nefndarritari: Elisabeth Patriarca Kruger

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:04
Frestað.

2) 622. mál - persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga Kl. 15:04
Á fund nefndarinnar kom Hörður H. Helgason lögmaður sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarinnar.

Á fund nefndarinnar komu einnig Rósa Dögg Flosadóttir frá dómsmálaráðuneyti, Björg Thorarensen prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og Vigdís Eva Líndal og Þórður Sveinsson frá Persónuvernd. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Nefndin fjallaði um málið.

3) Önnur mál Kl. 21:09
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 21:09