75. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 12. júní 2019 kl. 10:00


Mættir:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 10:00
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 10:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 2. varaformaður, kl. 10:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 10:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 10:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 10:00
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP) fyrir Andrés Inga Jónsson (AIJ), kl. 10:11
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP) fyrir Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 10:00

Birgir Ármannsson var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Kristel Finnbogad. Flygenring

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:00
Fundargerðir 72., 73. og 74. fundar voru samþykktar.

2) 801. mál - menntun, hæfni og ráðning kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla Kl. 10:00
Á fund nefndarinnar kom Kristinn Þorsteinsson frá Skólameistarafélagi Íslands sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt.

Að nefndaráliti meiri hlutans standa Páll Magnússon, Þórarinn Ingi Pétursson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir og Kolbeinn Óttarsson Proppé, þar af Jón Steindór Valdimarsson og Guðmundur Andri Thorsson með fyrirvara. Birgir Ármannsson ritar undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.

3) Veiting ríkisborgararéttar Kl. 10:17
Nefndin samþykkti að flytja frumvarp til laga um veitingu ríkisborgararéttar.

4) Önnur mál Kl. 10:19
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:19