61. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 150. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 21. apríl 2020 kl. 09:00


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 09:00
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 09:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:00
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 10:00
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:00

Birgir Ármannsson vék af fundi kl. 10:05.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir boðaði seinkun.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Klara Óðinsdóttir

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) 722. mál - breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 09:05
Nefndin ræddi við Þorvald Heiðar Þorsteinsson og Guðmund Bjarna Ragnarsson frá Dómsmálaráðuneyti í gegnum fjarfundarbúnað. Þeir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Nefndin ræddi enn fremur við Ásthildi Lóu Þórsdóttur, Guðmund Ásgeirsson og Vilhjálm Bjarnason frá Hagsmunasamtökum heimilanna. Þau gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Þá ræddi nefndin við Ólöfu Finnsdóttur frá Dómstólasýslunni. Hún gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Að lokum ræddi nefndin við Ásdísi Ármannsdóttur frá Sýslumannafélagi Íslands. Hún gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Tillaga um að Páll Magnússon verði framsögumaður málsins var samþykkt.

3) Starfið framundan Kl. 10:30
Nefndin fjallaði um starfið framundan.

Tillaga um að nefndin fjalli um aukið heimilisofbeldi á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru var samþykkt.

4) 643. mál - forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021--2025 Kl. 09:35
Tillaga um að Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.

Tillaga um að málið verði sent til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti var samþykkt.

5) Önnur mál Kl. 10:35
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:40