63. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 150. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn föstudaginn 24. apríl 2020 kl. 13:00


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 13:00
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 13:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 13:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 13:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 13:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 13:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 13:00
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 13:00
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 13:00

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Klara Óðinsdóttir

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:00
Dagskrárlið frestað.

2) 722. mál - breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 13:05
Nefndin ræddi við Þorvald Heiðar Þorsteinsson og Guðmund Bjarna Ragnarsson frá dómsmálaráðuneyti í gegnum fjarfundabúnað. Þeir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti meiri hluta standa Páll Magnússon, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Birgir Ármannsson, Guðmundur Andri Thorsson, Steinunn Þóra Árnadóttir, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þórarinn Ingi Pétursson.

Anna Kolbrún Árnadóttir og Helgi Hrafn Gunnarsson boðuðu sérálit og breytingartillögur.

3) Önnur mál Kl. 13:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:15