67. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 150. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn föstudaginn 8. maí 2020 kl. 15:00


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 15:00
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 15:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 15:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 15:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 15:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 15:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 15:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 15:00
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 15:00

Nefndarritari: Klara Óðinsdóttir

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:00
Fundargerð 66. fundar var samþykkt.

2) 643. mál - forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021--2025 Kl. 15:00
Nefndin ræddi við Magnús Þorkelsson skólameistara Flensborgar í gegnum fjarfundabúnað. Hann gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Nefndin ræddi einnig við Þóru Jónsdóttur frá Barnaheillum í gegnum fjarfundabúnað. Hún gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 362. mál - vernd uppljóstrara Kl. 15:30
Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt.

Að nefndaráliti meiri hluta standa Páll Magnússon, Anna Kolbrún Árnadóttir, Birgir Ármannsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.

4) 470. mál - dómstólar o.fl. Kl. 15:40
Nefndin ákvað að Birgir Ármannsson verði framsögumaður málsins.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt.

Að nefndaráliti meiri hluta standa Páll Magnússon, Anna Kolbrún Árnadóttir með fyrirvara, Birgir Ármannsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson með fyrirvara, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir.

5) Önnur mál Kl. 15:55
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:55