6. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 22. október 2020 kl. 09:00


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 09:00
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 09:15
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:00
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:00
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 09:00

Nefndarritari: Elisabeth Patriarca Kruger

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 5. fundar var samþykkt.

2) 160. mál - breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 09:00
Nefndin ræddi við Sigríði J. Friðjónsdóttur frá ríkissaksóknara, Kolbrúnu Benediktsdóttur frá héraðssaksóknara, Höllu Bergþóru Björnsdóttur og Maríu Káradóttur frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, og Dagmar Ösp Vésteinsdóttur frá Ákærendafélagi Íslands. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Nefndin ræddi einnig við Ólöfu Finnsdóttur frá dómstólasýslunni og Kjartan Bjarna Björgvinsson frá Dómarafélagi Íslands. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið.

Þá ræddi nefndin við Svavar Pálsson og Kristínu Þórðardóttur frá sýslumannaráði og Þuríði Árnadóttur frá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið.

3) 204. mál - barnalög Kl. 09:45
Tillaga um að Steinunn Þóra Árnadóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.

Tillaga um að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti var samþykkt.

4) 205. mál - þinglýsingalög Kl. 09:45
Tillaga um að Páll Magnússon verði framsögumaður málsins var samþykkt.

Tillaga um að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti var samþykkt.

5) 207. mál - skráning einstaklinga Kl. 09:45
Tillaga um að Silja Dögg Gunnarsdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.

Tillaga um að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti var samþykkt.

6) 211. mál - bætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum Kl. 09:45
Tillaga um að Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.

Tillaga um að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti var samþykkt.

7) Önnur mál Kl. 09:46
Nefndin ræddi störf nefndarinnar og fyrirkomulag næstu funda.

Fundi slitið kl. 09:55