78. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 8. júní 2021 kl. 10:35


Mætt:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 10:35
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 10:35
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) 2. varaformaður, kl. 10:35
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 10:35
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 10:35
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 10:35
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 10:40
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 10:35
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 10:35

Nefndarritari: Elisabeth Patriarca Kruger

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:35
Fundargerð 77. fundar var samþykkt.

2) 716. mál - grunnskólar og framhaldsskólar Kl. 10:37
Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sat hjá.

Að nefndaráliti með breytingartillögu standa Páll Magnússon, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Birgir Ármannsson og Steinunn Þóra Árnadóttir.

3) Þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd Kl. 10:45
Nefndin fékk á sinn fund Tómas Hrafn Sveinsson frá kærunefnd útlendingamála sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

Hlé var gert á fundi kl. 10:55-11:15.

Nefndin fékk á sinn fund Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra og Valgerði Maríu Sigurðardóttur, Gunnlaug Geirsson og Kristínu Maríu Gunnarsdóttur frá dómsmálaráðuneyti. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 10:40
Nefndin ræddi störf nefndarinnar.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:35