8. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 152. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 25. janúar 2022 kl. 09:10


Mætt:

Bryndís Haraldsdóttir (BHar) formaður, kl. 09:10
Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 1. varaformaður, kl. 09:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF) 2. varaformaður, kl. 09:10
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 09:10
Bergþór Ólason (BergÓ), kl. 09:10
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:10
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 09:10
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:10
Logi Einarsson (LE), kl. 09:10
Sigmar Guðmundsson (SGuðm), kl. 09:10

Nefndarritari: Inga Valgerður Stefánsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 7. fundar var samþykkt.

2) Kynning á starfsemi Útlendingastofnunar Kl. 09:15
Nefndin fékk á sinn fund Kristínu Völundardóttur og Þórhildi Ósk Hagalín frá Útlendingastofnun. Gestir kynntu starfsemi stofnunarinnar og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 173. mál - hraðari málsmeðferð og bætt réttarstaða þolenda heimilisofbeldis við hjúskaparslit Kl. 10:44
Tillaga um að Bryndís Haraldsdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.
Tillaga um að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti var samþykkt.

4) 178. mál - kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla Kl. 10:45
Tillaga um að Jóhann Friðrik Friðriksson verði framsögumaður málsins var samþykkt.
Tillaga um að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti var samþykkt.

5) 20. mál - upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál Kl. 10:47
Tillaga um að Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.
Tillaga um að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti var samþykkt.

6) Önnur mál Kl. 10:48
Nefndin ræddi veitingu íslensks ríkisborgararéttar með lögum og fyrirkomulag næstu funda.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00