9. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 152. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 27. janúar 2022 kl. 09:10


Mætt:

Bryndís Haraldsdóttir (BHar) formaður, kl. 09:10
Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 1. varaformaður, kl. 09:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF) 2. varaformaður, kl. 09:10
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 09:10
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:10
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 09:10
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:10
Logi Einarsson (LE), kl. 09:10
Sigmar Guðmundsson (SGuðm), kl. 09:10

Bergþór Ólason var fjarverandi.

Nefndarritari: Inga Valgerður Stefánsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 8. fundar var samþykkt.

2) Íslenskur ríkisborgararéttur Kl. 09:12
Nefndin fjallaði um málið.

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir óskaði eftir að nefndin fjallaði um íslenskan ríkisborgararétt á opnum fundi. Það var samþykkt.

3) Kynning á þingmálaskrá innanríkisráðherra á 152. löggjafarþingi Kl. 09:35
Nefndin fékk á sinn fund Jón Gunnarsson innanríkisráðherra, Bryndísi Helgadóttur, Berglindi Báru Sigurjónsdóttur, Rögnu Bjarnadóttur, Valgerði Maríu Sigurðardóttur og Brynjar Þór Níelsson frá dómsmálaráðuneytinu.
Innanríkisráðherra kynnti þingmálaskrá sína fyrir 152. löggjafarþing og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) 202. mál - almenn hegningarlög Kl. 10:14
Frestað.

5) 170. mál - Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu Kl. 10:14
Frestað.

6) Önnur mál Kl. 10:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:15