2. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 22. september 2022 kl. 09:10


Mætt:

Bryndís Haraldsdóttir (BHar) formaður, kl. 09:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF) 2. varaformaður, kl. 09:10
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 09:10
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:10
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 09:10
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 09:10
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:10
Sigmar Guðmundsson (SGuðm), kl. 09:10

Eyjólfur Ármannsson boðaði forföll.
Bergþór Ólason var fjarverandi.
Sigmar Guðmundsson tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað.

Nefndarritari: Inga Valgerður Stefánsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 1. fundar var samþykkt.

2) Kynning á þingmálaskrá forsætisráðherra á 153. löggjafarþingi Kl. 09:10
Nefndin fékk á sinn fund Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Sigurð Örn Guðleifsson frá forsætisráðuneytinu.

3) Umsagnarbeiðnir Kl. 09:30
Nefndin samþykkti að veita formanni heimild til að óska eftir umsögnum um þingmál sem til hennar er vísað enda verði nefndarmönnum gefinn kostur á að koma að ábendingum um umsagnaraðila og umsagnarbeiðnin sett á dagskrá næsta fundar nefndarinnar þar á eftir til staðfestingar, sbr. 2. mgr. 23. gr. starfsreglna fastanefnda. Ákveðið var að heimildin taki eingöngu til mála þar sem umsagnarfrestur er hefðbundinn.

4) Starfið framundan Kl. 09:35
Nefndin ræddi starfið framundan.

5) Fræðsluferð til Noregs og Danmerkur 2022 Kl. 09:40
Nefndin ræddi um fyrirhugaða fræðsluferð til Noregs og Danmerkur í tengslum við málefnasvið nefndarinnar.

6) 136. mál - framhaldsfræðsla Kl. 10:07
Tillaga um að Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.
Tillaga um að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti var samþykkt.

7) Önnur mál Kl. 10:08
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:15