14. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 17. nóvember 2022 kl. 09:10


Mætt:

Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 1. varaformaður, kl. 09:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF) 2. varaformaður, kl. 09:10
Arnar Þór Jónsson (AÞJ), kl. 09:10
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 09:10
Högni Elfar Gylfason (HEG), kl. 09:10
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 09:10
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:10
Sigmar Guðmundsson (SGuðm), kl. 09:10

Birgir Þórarinsson og Helga Vala Helgadóttir boðuðu forföll.
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað.

Nefndarritari: Inga Valgerður Stefánsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:19
Fundargerð 13. fundar var samþykkt.

2) 382. mál - útlendingar Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Arnar Sigurð Hauksson, Gunnlaug Geirsson og Valgerði Maríu Sigurðardóttur frá dómsmálaráðuneytinu. Því næst komu Halldór Oddsson og Saga Kjartansdóttir frá Alþýðusambandi Íslands.

3) Önnur mál Kl. 10:17
Nefndin ræddi veitingu íslensks ríkisborgararéttar með lögum.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:20