6. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 1. nóvember 2011 kl. 09:05


Mættir:

Björgvin G. Sigurðsson (BjörgvS) formaður, kl. 09:05
Birgitta Jónsdóttir (BirgJ), kl. 09:05
Eygló Harðardóttir (EyH), kl. 09:05
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:05
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 09:05
Skúli Helgason (SkH), kl. 09:05
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:05
Þráinn Bertelsson (ÞrB), kl. 09:05
Þuríður Backman (ÞBack), kl. 09:05

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerðir síðustu funda. Kl. 09:05
Fundargerðir 3., 4. og 5. fundar voru staðfestar.

2) 15. mál - grundvallarskilgreiningar löggæslu á Íslandi og gerð löggæsluáætlunar fyrir Ísland Kl. 09:15
Rætt var um málsmeðferð. Eygló Harðardóttir var valinn framsögumaður en málið hafði áður verið sent til umsagnar með fresti til 10. nóvember.

3) 8. mál - meðferð sakamála og meðferð einkamála Kl. 09:20
Rætt var um málsmeðferð. Birgitta Jónsdóttir var valinn framsögumaður og málið sent til umsagnar með fresti til 18. nóvember nk.

4) 26. mál - forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu Kl. 09:25
Rætt var um málsmeðferð. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var valinn framsögumaður og málið sent til umsagnar með fresti til 18. nóvember nk.

5) 72. mál - uppstokkun réttarkerfisins og millidómstig Kl. 09:30
Rætt var um málsmeðferð. Ragnheiður Ríkharðsdóttir var valinn framsögumaður og málið sent til umsagnar með fresti til 18. nóvember nk.

6) 42. mál - íslenskur ríkisborgararéttur Kl. 09:40
Rætt var um málsmeðferð. Oddný Harðardóttir var valinn framsögumaður og málið sent til umsagnar með fresti til 18. nóvember nk.

7) Önnur mál. Kl. 10:00
Rætt var um að mikilvægt væri að formenn nefnda kæmu saman ásamt forsætisnefnd og fjölluðu um nýjar starfsreglur fastanefnda.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:05