46. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 18. febrúar 2014 kl. 09:00


Mættir:

Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 09:00
Páll Valur Björnsson (PVB) 1. varaformaður, kl. 09:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 09:00
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:00
Guðbjartur Hannesson (GuðbH), kl. 09:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:00
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Jóhanna María Sigmundsdóttir var fjarverandi vegna veikinda.

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 09:00
Formaður kynnti fundargerðir 44 og 45 og voru þær samþykktar.

2) 249. mál - útlendingar Kl. 09:03
Á fund nefndarinar komu Ragnar Aðalsteinsson lögmaður, Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Atli Valur Thorsteinsson, Ingibjörg Elíasdóttir frá Jafnréttisstofu (símafundur), Sigríður Björk Guðjónsdóttir frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum og Rósa Dögg Flosadóttir og Hermann Sæmundsson frá innanríkisráðuneytinu. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 11:30
Á fund nefndarinnar komu Pétur Þór Jónasson og Geir Kristinn Aðalsteinsson frá Eyþing- samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Fóru þeir yfir mál 250 og 251., og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:50