42. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 10. mars 2015 kl. 09:00


Mættir:

Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 09:00
Páll Valur Björnsson (PVB) 1. varaformaður, kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:12
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:40
Guðbjartur Hannesson (GuðbH), kl. 09:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:00
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Líneik Anna Sævarsdóttir var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis.

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) 430. mál - meðferð sakamála og lögreglulög Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar komu Bryndís Helgadóttir, Hinrika Sanda Ingimundardóttir og Arnheiður Ingjaldsdóttir frá innanríkisráðuneytinu. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 470. mál - almenn hegningarlög Kl. 10:00
Á fund nefndarinnar komu Bryndís Helgadóttir og Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson frá innanríkisráðuneytinu. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 475. mál - almenn hegningarlög Kl. 10:00
Á fund nefndarinnar komu Bryndís Helgadóttir og Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson frá innanríkisráðuneytinu. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) 436. mál - almenn hegningarlög Kl. 10:00
Á fund nefndarinnar komu Bryndís Helgadóttir og Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson frá innanríkisráðuneytinu. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

6) Breytingar á sýslumanns- og lögregluembættum. Kl. 10:30
Á fund nefndarinnar komu Bryndís Helgadóttir, Þórunn J. Hafstein, Hermann Sæmundsson og Arnheiður Ingjaldsdóttir frá innanríkisráðuneytinu. Fóru þau yfir breytingar á sýslumanns- og lögregluembættum og svöruðu spurningum nefndarmanna.

7) Fýsileikaskýrsla. Kl. 11:00
Á fund nefndarinnar komu Björg Pétursdóttir, Guðfinna Bjarnadóttir, Jón Vilberg Guðjónsson og Leifur Eysteinsson frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Fóru þau yfir fýsileikaskýrslu og svöruðu spurningum nefndarmanna.

8) Önnur mál Kl. 11:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:30