37. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 17. febrúar 2016 kl. 11:30


Mættir:

Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 11:56
Guðmundur Steingrímsson (GStein) 1. varaformaður, kl. 11:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 11:30
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 11:30
Haraldur Einarsson (HE) fyrir Karl Garðarsson (KG), kl. 11:30
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 11:30
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 11:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 11:30

Jóhanna María Sigmundsdóttir var fjarverandi.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir og Guðmundur Steingrímsson véku af fundi kl. 12:05 vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 96/2002, með síðari breytingum (úrskurðarnefnd og fjölgun nefndarmanna) Kl. 11:30
Á fund nefndarinnar komu Hermann Sæmundsson og Þorsteinn Gunnarsson frá innanríkisráðuneytinu. Fóru þeir yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) 332. mál - fullnusta refsinga Kl. 12:10
Á fund nefndarinnar komu Páll Winkel og Guðrún Edda Guðmundsdóttir frá Fangelsismálastofnun. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 237. mál - Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað Kl. 12:35
Borin var upp sú tillaga að Helgi Hrafn Gunnarsson yrði framsögumaður málsins. Það var samþykkt.

4) Önnur mál Kl. 12:37
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:37