31. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 17. apríl 2018 kl. 16:00


Mættir:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 16:00
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 16:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 2. varaformaður, kl. 16:00
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 16:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 16:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 16:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 16:00
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 16:00

Jón Steindór Valdimarsson boðaði forföll.

Nefndarritari: Elisabeth Patriarca Kruger

Fundurinn var sameiginlegur með fjárlaganefnd. Páll Magnússon, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, stýrði fundi.

Bókað:

1) 494. mál - fjármálaáætlun 2019--2023 Kl. 16:00
Á fund nefndarinnar komu Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra og Haukur Guðmundsson og Pétur U. Fenger frá dómsmálaráðuneyti. Gestir kynntu málefnasvið og málaflokka sem eru á fagsviði ráðuneytisins og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) Önnur mál Kl. 17:33
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 17:33