1. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 18. september 2018 kl. 09:30


Mættir:

Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 09:30
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 09:30
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 2. varaformaður, kl. 09:30
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:30
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:30
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:30
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:30
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:30
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 09:30

Steinunn Þóra Árnadóttir vék af fundi kl. 09:57.

Nefndarritari: Elisabeth Patriarca Kruger

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerðir 47., 49., 51., 52., 53., 54., 55., 56., 57. og 58. fundar frá 148. löggjafarþingi voru samþykktar.

2) Starfið framundan Kl. 09:30
Nefndin ræddi verkefni nefndarinnar framundan, dagskrár næstu funda og hugmyndir að heimsóknum.

3) Önnur mál Kl. 09:58
Nefndin ræddi um að fá yfirlit mála á málefnasviði nefndarinnar sem eru í opnu samráðsferli í Samráðsgátt stjórnvalda við almenning.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:00