22. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 26. nóvember 2019 kl. 09:00


Mættir:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
María Hjálmarsdóttir (MH) fyrir Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur (AFE), kl. 09:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:00
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:00
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:15
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 09:00
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:03

Jón Þór Ólafsson boðaði forföll.

Nefndarritari: Birgitta Kristjánsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerðir 17.-19. fundar voru samþykktar.

2) 382. mál - búvörulög og tollalög Kl. 09:01
Á fund nefndarinnar mættu Ása Þórhildur Þórðardóttir og Elísabet Anna Jónsdóttir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Sigurður Eyþórsson frá Bændasamtökum Íslands.
Kl. 10:30 komu Ólafur Stephensen og Páll Rúnar M. Kristjánsson frá Félagi atvinnurekenda.
Gestirnir kynntu mál sitt og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 318. mál - breyting á ýmsum lögum á sviði matvæla Kl. 10:15
Á fund nefndarinnar mættu Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Hrefna Karlsdóttir og Kristjáns Þórarinsson. Gestirnir kynntu mál sitt og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 11:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:15