30. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 15. janúar 2020 kl. 15:05


Mætt:

Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 15:05
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 15:10
Helga Vala Helgadóttir (HVH) fyrir (AFE), kl. 15:05
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 15:05
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 15:05
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 15:10
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 15:05

Lilja Rafney Magnúsdóttir boðaði forföll.
Jón Þór Ólafsson var fjarverandi.
Ásmundur Friðriksson vék af fundi kl. 15:45.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:05
Frestað

2) Skýrsla íslenska sjávarklasans: Bak við yztu sjónarrönd Kl. 15:05
Á fund nefndarinnar mættu Berta Daníelsdóttir, Þór Sigfússon og Þórlindur Kjartansson frá Íslenska sjávarklasanum. Kynntu þau skýrslu Íslenska sjávarklasans: Bak við yztu sjónarrönd og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Úthlutun eldissvæða skv. lögum um fiskeldi. Kl. 16:05
Á fund nefndarinnar mættu Haukur Oddsson, Sigurður G. Guðjónsson og Gísli Jón Hjaltason frá Hábrún ehf. Fjölluðu þeir um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 16:45
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:50