36. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 5. febrúar 2020 kl. 15:10


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 15:10
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 15:10
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 15:10
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 15:10
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 15:10
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 15:10
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 15:10
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 15:10

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir og Jón Þór Ólafsson voru á símafundi.
Njáll Trausti Friðbertsson boðaði forföll.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:10
Frestað.

2) Aðgerðaáætlun um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna Kl. 15:10
Á fund nefndarinnar mættu Ása Þórhildur Þórðardóttir, Linda Fanney Valgeirsdóttir og Kristín Silja Guðlaugsdóttir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Fjölluðu þær um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 118. mál - stjórn fiskveiða Kl. 15:50
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með þriggja vikna umsagnarfresti.

4) Önnur mál Kl. 16:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:00