38. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 25. febrúar 2020 kl. 09:05


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 09:05
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 09:05
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 09:05
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:05
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 09:15
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:05
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:05
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:05
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 09:05

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:05
Fundargerð 37. fundar var samþykkt.

2) Úttekt á strandveiðum Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar mætti Sigurður Árnason frá Byggðastofnun. Fjallaði hann um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Örsláturhús Kl. 09:50
Á fund nefndarinnar mætti Sveinn Margeirsson. Fjallaði hann um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) 265. mál - kolefnismerking á kjötvörur og garðyrkjuafurðir til manneldis Kl. 11:00
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með þriggja vikna umsagnarfresti.

5) Önnur mál Kl. 11:05
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir óskaði eftir því að eftirfarandi mál yrðu tekin á dagskrá, með vísan til 2. mgr. 15. gr. laga um þingsköp Alþingis:
120. mál um ráðstafanir til að draga úr notkun pálmaolíu á Íslandi,
204. mál um merkingar um kolefnisspor matvæla,
163. mál um búvörulög og búnaðarlög (verðlagsnefnd búvara, undanþágur frá ákv. samkeppnislaga, verðjöfnunargjöld).

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:10