40. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 27. febrúar 2020 kl. 09:10


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 09:10
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 09:10
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 09:10
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:10
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 09:35
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:10
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:10
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:10
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 09:50
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:10

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Frestað.

2) Endurskoðun á Nýsköpunarmiðstöð Íslands Kl. 09:10
Á fund nefndarinnar mættu Kristján Skarphéðinsson og Sigríður Valgeirsdóttir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 120. mál - ráðstafanir til að draga úr notkun pálmaolíu á Íslandi Kl. 10:00
Á fund nefndarinnar mættu Tryggvi Felixson frá Landvernd, Trausti Baldursson frá Náttúrufræðistofnun Íslands og Árni Finnsson frá Náttúruverndarsamtökum Íslands. Fjölluðu þeir um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 204. mál - merkingar um kolefnisspor matvæla Kl. 10:15
Nefndin fjallaði um málið.

5) 163. mál - búvörulög og búnaðarlög Kl. 10:17
Nefndin fjallaði málið.

6) 29. mál - jarðalög Kl. 10:20
Nefndin fjallaði um málið.

7) 121. mál - mótun klasastefnu Kl. 10:25
Nefndin fjallaði um málið.

8) 596. mál - endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi Kl. 10:30
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með þriggja vikna umsagnarfresti. Þá var ákveðið að Ásmundur Friðriksson verði framsögumaður málsins.

9) 310. mál - endurskoðun á lagaumhverfi fyrir smávirkjanir Kl. 10:30
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með þriggja vikna umsagnarfresti. Þá var ákveðið að Halla Signý Kristjánsdóttir verði framsögumaður málsins.

10) Önnur mál Kl. 10:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:30