65. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 4. júní 2020 kl. 09:10


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 09:10
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 09:10
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 09:10
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:10
Inga Sæland (IngS), kl. 09:10
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 09:10
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:10
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:10
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:20
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 09:10
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:10

Ásmundur Friðriksson var á staðfundi frá kl. 10:30 og vék af fundi kl. 11:35.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir vék af fundi kl. 11:40.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Ásmundur Friðriksson, Jón Þór Ólafsson, Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tóku þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Dagskrárlið frestað.

2) 713. mál - breyting á ýmsum lögum á sviði sjávarútvegs, fiskeldis, lax- og silungsveiði vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Örn Pálsson og Þorlák Halldórsson frá Landssambandi smábátasjómanna.

3) Strandveiðar Kl. 09:55
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Örn Pálsson og Þorlák Halldórsson frá Landssambandi smábátasjómanna.

Gestir véku af fundi kl. 10:20 og hlé var gert á fundi til kl. 10:30.

4) 608. mál - innflutningur dýra Kl. 10:30
Framsögumaður málsins Lilja Rafney Magnúsdóttir fór yfir drög að nefndaráliti.

Nefndin samþykkti að afgreiða málið til 3. umræðu með atkvæðum allra viðstaddra nefndarmanna.

Allir nefndarmenn rituðu undir nefndarálit með breytingartillögu. Jón Þór Ólafsson ritaði undar með fyrirvara og skv. heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

5) 640. mál - vörumerki Kl. 10:45
Framsögumaður málsins Halla Signý Kristjánsdóttir kynnti drög að nefndaráliti með breytingartillögu. Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

6) 639. mál - Orkusjóður Kl. 11:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

7) 712. mál - Framkvæmdasjóður ferðamannastaða Kl. 11:15
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið.

8) 839. mál - ferðagjöf Kl. 11:20
Nefndin fjallaði um málið.

9) Önnur mál Kl. 11:45
Nefndin ræddi störfin framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:52