70. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 12. júní 2020 kl. 09:10


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 09:10
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 09:45
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 09:10
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:10
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 09:10
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:45
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:10
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:10
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 09:10
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 11:00
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:10

Halla Signý Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 10:32. Silja Dögg Gunnarsdóttir tók sæti hennar kl. 11:00.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Dagskrárlið frestað.

2) 714. mál - breyting á ýmsum lögum á sviði landbúnaðar og matvæla vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu Kl. 09:10
Nefndin ræddi málið.

3) 251. mál - lax- og silungsveiði Kl. 09:50
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund (kl. 9:50) Margréti Einarsdóttur prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík og Atla Má Ingólfsson lögmann. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Hlé á fundi kl. 11:00, sjá. 4. lið dagskrár.

Nefndin ræddi einnig við (kl. 11:12) Sigurð Þór Guðmundsson oddvita Svalbarðshrepps, Jóhannes Sigfússon formann Veiðifélags Hafralónsár í Þistilfirði og Víðir Smára Petersen lögmann í gegnum fjarfundabúnað. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 11:42
Nefndin ræddi störfin framundan.

Liðurinn Önnur mál var einnig á dagskrá nefndarinnar á milli kl. 10:55 og 11:10.

Meirihluti nefndar samþykkti þá tillögu formanns að heimilt yrði að boða til aukafundar utan hefðbundins fundartíma mánudaginn 15. júní, til að taka fyrir drög að nefndarálitum í þremur málum, 713., 714. og 251.

Jafnframt felldi meirihlutinn þá tillögu Jóns Þórs Ólafssonar að drög að nefndaráliti í 251. máli yrðu ekki á dagskrá þess fundar.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:45