87. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 28. september 2020 kl. 09:00


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 09:00
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG) fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur (ÞSÆ), kl. 09:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:00
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:00
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:00
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 09:00

Nefndarritarar:
Sigrún Rósa Björnsdóttir
Ívar Már Ottason

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 27. ágúst sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 84. fundar var samþykkt.

2) Málefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands Kl. 09:00
Á fund nefndarinnar mættu Kjartan Due Nielsen, Helga Dögg Flosadóttir og Páll Árnason frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands,. Gestirnir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Staða nýsköpunar á Íslandi Kl. 09:55
Á fund nefndarinnar mættu Kristján Skarphéðinsson, Sigríður Valgeirsdóttir, Sigrún Brynja Einarsdóttir og Guðrún Gísladóttir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Gestirnir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 10:55
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:55