3. fundur
atvinnuveganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 14. október 2020 kl. 15:05


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 15:05
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 15:05
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 15:05
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 15:05
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 15:05
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 15:05
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 15:05
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 15:05
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 15:05

Helgi Hrafn Gunnarsson boðaði forföll.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:05


2) Kynning á þingmálaskrá ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra á 151. löggjafarþingi (2020-2021). Kl. 15:05
Á fund nefndarinnar mættu Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-,iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Ingvi Már Pálsson og Sigrún Brynja Einarsdóttir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Fóru þau yfir þingmálaskrá ráðherra og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Kynning á þingmálaskrá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á 151. löggjafarþingi (2020-2021). Kl. 16:12
Á fund nefndarinnar mættu Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Arnór Snæbjörnsson og Ása Þórhildur Þórðardóttir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Fóru þau yfir þingmálaskrá ráðherra og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 16:42
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:45