11. fundur
atvinnuveganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn miðvikudaginn 11. nóvember 2020 kl. 15:00


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 15:00
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 15:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 15:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 15:00
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 15:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 15:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 15:00
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 15:00
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 15:00

Sigurður Páll Jónsson var fjarverandi. Haraldur Benediktsson vék af fundi kl. 16:00.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:00
Dagskrárlið frestað.

2) Kynning á Sviðsmyndagreiningu um ferðaþjónustu Kl. 15:00
Nefndin fékk á sinn fund Skarphéðin Berg Steinarson frá Ferðamálastofu og Benedikt Magnússon og Sævar Kristinsson frá KPMG ehf. Gestir kynntu Sviðsmyndagreiningu um ferðaþjónustu og svöruðu í framhaldi spurningum nefndarmanna.

3) 56. mál - samvinnufélög o.fl. Kl. 16:05
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Jón Fannar Kolbeinsson frá Jafnréttisstofu, Sigurbjörgu Stellu Guðmundsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og Steinunni Valdísi Óskarsdóttur og Rán Ingvarsdóttur frá forsætisráðuneyti. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 202. mál - tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist Kl. 16:20
Halla Signý Kristjánsdóttir, framsögumaður málsins kynnti drög að nefndaráliti. Nefndin fjallaði um málið.

5) 224. mál - búvörulög Kl. 16:35
Ásmundur Friðriksson, framsögumaður málsins, kynnti drög að nefndaráliti. Nefndin fjallaði um málið.

6) 12. mál - merkingar og upplýsingaskylda varðandi vörur sem tengjast orkunotkun Kl. 16:45
Nefndin fjallaði um málið.

7) Önnur mál Kl. 16:53
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:57