62. fundur
atvinnuveganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 29. apríl 2021 kl. 09:03


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 09:03
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 09:03
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:03
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 09:03
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:03
María Hjálmarsdóttir (MH), kl. 09:09
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:07
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:03
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 09:03
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:03

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:03
Dagskrárlið frestað.

2) 616. mál - einkaleyfi Kl. 09:03
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til 2. umræðu.

Allir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálit án breytingartillögu.

3) 375. mál - jarðalög Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Hrafn Hlynsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Árna Bragason og Birki S. Fannarsson frá Landgræðslunni, Magnús Leópoldsson frá Fasteignamiðstöðinni ehf., Guðmund Einarsson frá Fannbergi - fasteignasölu ehf. og Pétur Guðmundarson.

Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 345. mál - lax- og silungsveiði Kl. 10:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Arnór Snæbjörnsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og Víði Smára Petersen.

Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) Önnur mál Kl. 10:35
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:37