37. fundur
atvinnuveganefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 27. febrúar 2014 kl. 09:00


Mættir:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:00
Geir Jón Þórisson (GJÞ) fyrir ÁsF, kl. 09:00
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:00

Jón Gunnarsson var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis.
Jón Þór Ólafsson var fjarverandi.
Kristján L. Möller og Björt Ólafsdóttir voru fjarverandi.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárliðnum var frestað.

2) 256. mál - stefnumótandi byggðaáætlun 2014--2017 Kl. 09:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Árna Ragnarsson og Guðmund Guðmundsson frá Byggðastofnun.

3) 140. mál - eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru Kl. 10:00
Rætt var um nefndarálit og breytingartillögur. Rætt um að afgreiða málið frá nefndinni á næsta fundi.

4) 187. mál - visthönnun vöru sem notar orku Kl. 10:05
Rætt var um nefndarálit og breytingartillögur. Rætt um að afgreiða málið frá nefndinni á næsta fundi.

5) Önnur mál. Kl. 10:10
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:10