43. fundur
atvinnuveganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 18. febrúar 2015 kl. 12:20


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 12:20
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 12:20
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 12:20
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 12:20
Kristján L. Möller (KLM), kl. 12:20
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 12:20
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 12:20
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 12:20

Björt Ólafsdóttir var fjarverandi.
Kristján L. Möller var á símafundi vegna veikinda.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) 321. mál - stefna stjórnvalda um lagningu raflína Kl. 12:20
Málið var afgreitt frá nefndinni með breytingartillögu. Undir nefndarálit meiri hlutans rita: JónG, HarB, ÁsF, KLM, PJP, ÞorS og ÞórE.
KLM var fjarverandi vegna veikinda en var á símafundi og ritar undir nefndarálit með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.
LRM verður með sérálit.

2) 305. mál - raforkulög Kl. 12:20
Málið var afgreitt frá nefndinni með breytingartillögu. Undir nefndarálit meiri hlutans rita: JónG, HarB, ÁsF, KLM (með fyrirvara), PJP, ÞorS og ÞórE.
KLM var fjarverandi vegna veikinda en var á símafundi og ritar undir nefndarálit með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.
LRM verður með sérálit.

3) Önnur mál. Kl. 13:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:00