62. fundur
atvinnuveganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 30. apríl 2015 kl. 08:30


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 08:30
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 08:30
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 08:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 08:30
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 08:30
Kristján L. Möller (KLM), kl. 08:30
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 08:30
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 08:30
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 08:30

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 08:30
Fundargerðir 55., 57. og 59. fundar voru samþykktar.

2) 692. mál - veiðigjöld Kl. 08:30
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Brynhildi Benediktsdóttur og Hinrik Greipsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

3) 11. mál - ívilnanir til nýfjárfestinga á Íslandi Kl. 09:45
HarB dreifði nefndaráliti og var málið afgreitt frá nefndinni. Undir nefndarálit rita meiri hluti nefndarinnar: HarB, JónG, LRM (með fyrirvara), ÁsF, KLM (með fyrirvara), PJP, ÞorS, ÞórE.
ÁsF og JónG höfðu vikið af fundi en rituðu undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis og voru ekki hreyfð andmæli við því.
BjÓ verður með sérálit.

4) 514. mál - lax- og silungsveiði Kl. 09:50
LRM dreifði nefndaráliti og var málið afgreitt. Undir nefndarálit rita: HarB, JónG, LRM, ÁsF, BjÓ, KLM, PJP, ÞorS, ÞórE.
ÁsF og JónG höfðu vikið af fundi en rituðu undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis og voru ekki hreyfð andmæli við því.

5) Önnur mál. Kl. 09:55
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:00